About KK
Um KK

Ég fæddist við upptök Mississippi árinnar í Minneapolis, Minnesota 26. mars 1956, en fluttist 10 ára til Íslands. Foreldrar mínir voru Kristján Ingi Einarsson byggingafræðingur og myndlistamaður (1922–1977) og Sigríður Ágústa Söebech, bankastarfsmaður (1922–2003). Ég lærði á gítar í Reykjavík, m.a. hjá Gunnari H. Jónssyni, og tók þátt í íslensku blúsbyltingunni á áttunda áratugnum þegar ég lék með Blús Kompaníinu á munnhörpu.

kk.is

Árið 1977 fluttist ég ásamt verðandi eiginkonu til Svíþjóðar þar sem ég lagði stund á tónlistarnám í Fridhems Folkhögskola 1979–1981 og síðar við Musikhögskolan í Pitea og Malmö, og útskrifaðist þaðan sem tónlistarkennari 1990. Á námsárunum stofnaði ég Blues Concept með sænskum félugum og gáfum við út smáskífu 1985. Árið 1986 skilnaðist ég og fór að spila sem götumúsíkant, busker, á götum Evrópu. Seinna það ár, í Hamborg, kynntist ég Red Archibald and the Internationals og túraði með þeim í tvo mánuði í Þýskalandi. Ég sameinaðist fjölskyldunni í Svíþjóð 1987 og saman héldum við til Noregs og eyddum næstu fjórum sumrum þar — ég sem busker og Þórunn að selja pokana sína. Auk þess kom ég út með snældu, K.K.Son, sem ég seldi á götunni með eigin lögum, og sum þeirra rötuðu síðar á Lucky One. Á þeim tíma stofnaði ég The Grinders með Professor Washboard og Derrick „Big“ Walker, á munnhörpu, og æskuvin mínum Þorleifi Guðjónssyni á bassa.

Fjölskyldan flutti heim 1990 og höfum við búið hér síðan. Ég er giftur Þórunni R. Þórarinsdóttur iðjuþjálfa og eigum við 3 börn, Sóley (1978), Sölva (1980) og Kristján Stein (1996). Samhliða tónlistinni hef ég unnið við tónlistarkennslu, stundað sjómennsku á eigin trillu, Æðruleyið, og aflaði mér skipstjórnaréttinda á 45 metra togara. Stuttu eftir Hrunið 2008 var leitað til mín til að vera með tónlistarþætti í Ríkisútvarpi landsmanna. Ég tók því boði og er enn með vikulega þætti sem hafa trónað á toppnum á Rás 1.

Ég hef starfað með fjölda tónlistarmanna hérlendis og ber þar helst að nefna Magnús Eiríksson og systur hans Ellen Kristjánsdóttur. Auk þess hef ég komið fram með eða hitað upp fyrir heimsþekkta listamenn eins og Elton John, John Fogerty, Kris Kristofferson, Eric Clapton, Bo Diddley, Nick Lowe, John Mayall, Johnny Copeland og Roger Hodgson (Supertramp).